Hífingar gengu vel í blíðskaparveðri
22.4.2022 Kl: 14:42
Áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í gærmorgun vegna veikinda um borð í íslensku línuskipi sem var á veiðum 64 sjómílur vestur af Sandgerði. Þegar komið var að skipinu var farið yfir framkvæmd hífinganna með áhöfn skipsins sem kunni vel til verka og gengu aðgerðirnar afar vel í blíðskaparveðri.
Aukin þjálfun sem sjómenn hafa hlotið í Slysavarnaskóla sjómanna á undanförnum áratugum hefur auðveldar störf þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar til muna enda skiptir góð þjálfun sérlega miklu máli þegar mikið liggur við.
Meðfylgjandi myndband sýnir sjónarhorn sigmanns Landhelgisgæslunnar í umræddu útkalli. Veikur sjómaður sóttur Línuskipið og sigmaður Landhelgisgæslunnar.