Tveir fluttir með þyrlu eftir bílveltu

17. mars, 2019

TF-LIF kölluð út

17.3.2019 Kl: 8:21

Tveir voru fluttir með þyrlu
Landhelgisgæslunnar eftir bílveltu milli Ólafsvíkur og Rifs. Laust fyrir
klukkan þrjú í nótt var óskað eftir aðstoð þyrlunnar sem tók á loft frá
Reykjavíkurflugvelli skömmu síðar. Sjúkrabíll flutti sjúklingana á flugvöllinn
á Rifi en þar lenti TF-LIF um klukkan fjögur í nótt. Þyrlan flutti þá slösuðu
til Reykjavíkur.