Tvö þyrluútköll um helgina
- Slösuðum skipverjum komið undir læknishendur og sjúkraflug til Vestmannaeyja.
17.2.2020 Kl: 14:51
Áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sótti tvo
slasaða skipverja í erlent flutningaskip á laugardag sem statt var skammt norður af Keilisnesi. Stjórnstöð
Landhelgisgæslunnar barst beiðni um aðstoð vegna slyss í vélarúmi
flutningaskipsins og var ákveðið að senda þyrlu Landhelgisgæslunnar til að hægt
væri að koma mönnunum undir læknishendur. Vegna tungumálaörðugleika var túlkur
fenginn til að aðstoða áhöfnina áður en þyrlan tók á loft til að fara yfir
hvernig staðið yrði að hífingum.
Þegar þyrlan kom á vettvang var sigmanni, lækni, tveimur hífingarbörum og búnaði var slakað um borð í skipið. Þyrlan fór frá skipinu meðan áhöfnin athafnaði sig um borð og hlúði að skipverjunum. Þeim var komið fyrir á grjónadýnu í hífingarbörum og undirbúnir til flutnings.
Að því búnu fór þyrlulæknirinn aftur um borð í þyrluna og svo voru skipverjarnir tveir hífðir um borð. Sigmaðurinn fór síðastur frá flutningaskipinu.
Meðfylgjandi myndband gefur góða innsýn í störf þyrlusveitarinnar og þar má sjá nokkur brot frá frá útkallinu frá sjónarhorni sigmannsins.
Skipverjarnir voru fluttir á Landspítalann í Fossvogi.
Á laugardagskvöldið var áhöfnin á TF-GRO kölluð út til að annast sjúkraflutning frá Vestmannaeyjum. Vegna veðurs gat sjúkraflugvél ekki lent í Eyjum. Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum og var komin aftur til baka rúmri klukkustund síðar.
Þyrlulæknir fer aftur um borð.
Sigmanni er slakað niður.