Tvö útköll þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna vélsleðaslysa

Vélsleðamenn fluttir með þyrlu til Reykjavíkur og Akureyrar

30.03.2019 Kl: 18:05

TF-LIF, þyrla Landhelgisgæslunnar, var tvisvar sinnum kölluð út í dag vegna vélsleðaslysa. Á fimmta tímanum var óskað eftir aðstoð þyrlunnar þegar vélsleðamaður slasaðist í Flateyjardal. Þyrlan tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 16:40 og flutti hinn slasaða á Sjúkrahúsið á Akureyri en þar lenti þyrlan laust eftir klukkan 18 í kvöld. 

Fyrr í dag var annar vélsleðamaður fluttur með þyrlunni til Reykjavíkur en sá slasaðist eftir fall í hlíðum Heklu. Þyrlan lenti á Reykjavíkurflugvelli laust fyrir tvö með hinn slasaða en þaðan var hann fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.