Uppfærður flugleiðsögubúnaður kominn í TF-LIF

Um mikið framfaraskref er að ræða

  • AEfing-med-Thor-8.1.2019

8.1.2019 Kl 13:15

Um miðjan nóvember var ráðist í umfangsmikla uppfærslu á flugleiðsögubúnaði TF-LIF, þyrlu Landhelgisgæslunnar, og var kanadíska fyrirtækið Heli One fengið til verksins.  Flugvirkjar hafa undanfarnar vikur unnið dag og nótt við breytinguna á vélinni sem er nú loksins tilbúin með nýjan fullkomnari flugleiðsögubúnað. Hann er með öflugri gagnagrunni  en sá gamli og er vottaður fyrir nútíma flugleiðsögu. Það er óhætt að segja að tími hafi verið kominn á breytinguna en fyrir uppfærsluna var einungis hægt að fljúga vélinni í dagsbirtu þar sem ekki fengust lengur varahlutir í gamla búnaðinn sem var fyrir löngu orðinn úreltur. Því var mikið kappsmál að uppfæra vélina og koma henni í nútímalegt horf en verkið var bæði umfangsmikið og tímafrekt. Um mikið framfaraskref er að ræða fyrir vélina sem hefur þjónað þjóðinni með góðum árangri frá árinu 1995 og mun gera áfram næstu árin. Vélin er þegar komin í  notkun og áhöfn hennar æfði með áhöfninni á varðskipinu Þór í morgun.

VerkidvarumfangsmikidEins og sjá má var verkefnið afar umfangsmikið.Umgfangsmikid3Sérfræðingar á vegum Heli One hafa unnið að uppfærslunni síðan í nóvember.AEfing-med-Thor-8.1.2019TF-LIF er komin í fulla notkun. Hér er hún á æfingu fyrr í dag ásamt áhöfninni á varðskipinu Þór en þyrlan fékk eldsneyti frá varðskipinu.

LIF-tekur-eldsneyti-fra-ThorEldsneytistakan undirbúin.IMG_0706TF-LIF hefur þjónað þjóðinni frá árinu 1995 með góðum árangri.