Varðskipið Týr komið til Reykjavíkur eftir eitt lengsta úthald hér við land hin síðari ár

6. apríl, 2020

– Áhöfnin á varðskipinu Tý komin til Reykjavíkur eftir fimm vikna ferð

6.4.2020 Kl: 11:33

Varðskipið Týr lagðist að bryggju í Reykjavík klukkan 10 í morgun eftir
eina lengstu ferð varðskips hér við land hin síðari ár. Þegar skipið hélt til
eftirlits í byrjun mars var gert ráð fyrir því að skipið yrði á Íslandsmiðum í
þrjár vikur, venju samkvæmt, en vegna aukinna varúðarráðstafana var ákveðið að
lengja ferðir varðskipa Landhelgisgæslunnar til að tryggja að hægt væri að
sinna órofnu eftirliti á hafinu umhverfis landið.

Thorben Lund, skipherra á Tý, segir ferðina hafa gengið vel og
fjölbreytt verkefni komið á borð áhafnarinnar.

Við komuna til Reykjavíkur í morgun stillti áhöfnin á Tý sér upp fyrir myndatöku ásamt
Jóni Marvin Pálssyni og Ragnari Marel Georgssyni, liðsmönnum, séraðgerðasveitar, sem tóku á móti skipinu á Miðbakka.

Tyr-3Áhöfnin á Tý við komuna til Reykjavíkur í morgun ásamt liðsmönnum séraðgerðasveitar.Tyr_1586173173938Thorben Lund, skipherra á Tý.Ahofni-a-Ty-eftir-5-vikna-turVarðskipið Týr.