Viðbúnaður vegna leka í vélarúmi fiskiskips

Skipið sigldi fyrir eigin vélarafli til hafnar að lokum

  • TF-GRO-i-fallegu-solarljosi

28.10.2023 Kl: 9:36

Síðdegis í gær hafði fiskiskip sem var að veiðum í Húnaflóa samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og tilkynnti að talsverður leki væri í vélarúmi skipsins.

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Drangsnesi, Skagaströnd og Siglufirði voru þegar í stað kölluð út á mesta forgangi. Að auki hafði Landhelgisgæslan samband við önnur skip og báta í grenndinni og óskaði eftir að þau héldu á svæðið.

Rúmum stundarfjórðungi eftir að útkallið barst upplýsti fiskiskipið að búið væri að stöðva lekann og að verið væri að dæla sjó úr skipinu. Skipið var þá enn aflvana og var ákveðið að björgunarskipin Sigurvin frá Siglufirði og Húnabjörg frá Skagaströnd héldi áfram að fiskiskipinu en þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, björgunarbáturinn á Drangsnesi og önnur fiskiskip voru afturkölluð.

Fjórtán voru um borð í fiskiskipinu og hæglætisveður var á svæðinu.

Um kvöldmatarleytið stóð til að björgunarskipið frá Skagaströnd tæki skipið í tog en áhöfn fiskiskipsins tókst að koma vélum þess í gang og það sigldi því fyrir eigin vélarafli til hafnar.