Árlegur vitatúr Landhelgisgæslunnar og Vegagerðarinnar stendur nú yfir.
28.5.2021 Kl: 14:56
Áhöfnin á varðskipinu Þór og starfsmenn Vegagerðarinnar sigla þessa dagana meðfram ströndum landsins vegna eftirlits á ljósvitum, skerjavitum, sjómerkjum og ljósduflum sem ekki er hægt að komast í frá landi.
Í vikunni var unnið að viðhaldi á vitanum á Hrólfsskeri og Sævar Már Magnússon, bátsmaður á Þór tók þetta skemmtilega myndband við það tækifæri.
Áhöfnin á Þór og starfsmenn Vegagerðarinnar á Hrólfsskeri.
Varðskipið Þór við Hrólfssker.
Varðskipið Þór tignarlegt í blíðskaparveðri.
Hrólfssker.
Varðskipið Þór í fjarlægð.