Loftrýmisgæsla NATO við Ísland að hefjast

10. mars, 2017

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst formlega að nýju fimmtudaginn 16. mars með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu um allt að 180 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kemur til landsins með sex Eurofighter Typhoon F-2000 orrustuþotur.

Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 20. mars til 24. mars.

Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki miðjan apríl. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli í samvinnu við Isavia.

Þetta er í annað sinn sem Ítalir koma hingað til lands til loftrýmisgæslu. Síðar á þessu ári sinna flugsveitir annars vegar úr kanadíska flughernum og hins vegar bandaríska flughernum loftrýmisgæslu hér við land.