
Áhöfnum varðskipanna vel tekið
10. mars 2026
Heimsóknir varðskipa Landhelgisgæslunnar vegna aldarafmælisins halda áfram. Um helgina heimsótti varðskipið Þór Flateyri...
15.1.2019 Kl: 10:10
Áhafnir varðskipanna Þórs og Hvidbjørnen héldu sameiginlega æfingu í Reykjavík á dögunum. Æfð var reykköfun og umönnun slasaðra. Áhafnir beggja skipa eru vel þjálfaðar og nýttu tækifærið þegar danska varðskipið var við bryggju í Reykjavík. Halldór Benóný Nellett, skipherra á Þór, segir að samstarf þjóðanna sé afar gott og Danir hafi reynst Landhelgisgæslunni vel í gegnum tíðina. Meðfylgjandi myndband sýnir frá þessari áhugaverðu æfingu.