Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 11 til 15 mars.
6.3.2019 Kl: 13:22
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að
hefjast að nýju með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu allt að 140
liðsmenn ítalska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn
frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center).
Flugsveitin kemur til landsins með fjórar Eurofighter Typhoon EF-2000
orrustuþotur.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri
og Egilsstöðum á tímabilinu 11 til 15 mars.
Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri
ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður
staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ráðgert er að verkefninu
ljúki um miðjan apríl. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í
samvinnu við Isavia.