Eftirlit í blíðskaparveðri

29. maí, 2019

Aflaskýrslur reyndust réttar.

29.5.2019 Kl: 12:30

Áhöfnin á varðskipinu Þór nýtti tækifærið og sinnti eftirliti við Reykjaneshrygg í blíðskaparveðri fyrr í vikunni. Að undanförnu hafa meðal annars þýsk, eistnesk, rússnesk og íslensk skip verið við veiðar á svæðinu en TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur einnig verið við eftirlit á þessum slóðum. Meðal þess sem varðskipsmenn könnuðu var hvort aflinn væri rétt skráður og reyndist svo vera.

61346294_309650343302376_5902425619039256576_n-1-Eftirlit við Reykjaneshrygg.

61209280_2256714027990584_3420110143163990016_nÁhöfn varðskipsins fer á léttbát til eftirlitsins. Myndir: Bergvin Gíslason.