Tilkynningar til sjófarenda, fyrsta útgáfa ársins 2026

2. febrúar, 2026

S.l. föstudag voru Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 1-2026, sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslands, sjá hér.

Í þessum tilkynningum má m.a. finna tilkynningu og hlekk á nýútgefna Kortaskrá fyrir árið 2026, sjá hér.

Breytingar í sjókortum þar sem dýpistölum skal breytt í sker utan við Höfn í Hornafirði.

Breytingar og bilanir, tilfærslur á leiðsögu við hafnir, ljósdufl og leiðarlína.

Innsetning á svæði fyrir fiskeldi í Reyðarfirði, annað svæði í Fáskrúðsfirði sem á að afmá.

Ný vitaskrá, sjá hér, sem verður framvegis uppfærð samhliðar tilkynntum breytingum í Tilkynningum til sjófarenda.

Fimm neðansjávar rannsóknardufl, staðsett í kantinum utan Papagrunns.

Leiðréttingar í „Leiðsögubók fyrir sjómenn við Ísland“.

Þá var tilkynnt um útgáfu á nýju sjókorti, Aðsiglingakort númer – 428 „Flatey – Reykhólar“.