Laust eftir klukkan eitt í dag lenti F-35 orrustuþota ítalska flughersins á Akureyrarflugvelli af öryggisástæðum.
27.9.2019 Kl: 14:25
Laust eftir klukkan eitt í dag lenti F-35 orrustuþota
ítalska flughersins á Akureyrarflugvelli af öryggisástæðum. Vélin var í
æfingaflugi en loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst í næstu viku.
TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út til að flytja liðsmenn ítalska
flughersins norður til að kanna ástand vélarinnar. Með í för eru einnig tveir
liðsmenn séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og tveir frá sérsveit
ríkislögreglustjóra til að annast öryggisgæslu umhverfis vélina. TF-GRO tók á
loft frá Reykjavíkurflugvelli um klukkan 14:00.