
Þingmenn í heimsókn um borð í varðskipinu Þór
12. október 2026
Um helgina tók áhöfn varðskipsins Þórs á móti hópi þingmanna sem sóttu Ísland heim í tengslum við Arctic Circle-ráðstefn...

Varðskipið Þór var opið almenningi í Grundarfirði um helgina í tilefni 100 ára afmælis Landhelgisgæslu Íslands. Á fjórða hundrað manns lagði leið sína um borð í skipið en leik- og grunnskólanum var boðið að koma á föstudagsmorgun og á laugardeginum var skipið opið fyrir gesti og gangandi.
Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðar kom um borð og óskaði Landhelgisgæslunni til hamingju með afmælið og í tilefni þess færði hún áhöfninni bók að gjöf með myndum frá Grundarfirði og nærsveitum, sem verður varðveit á bókasafni varðskipsins.
Landhelgisgæslan þakkar kærlega fyrir góðar móttökur í Grundarfirði.





