Halldór Nellet skipherra lagði upp í sína síðustu ferð í vikunni
19.11.2020 Kl: 12:30
Halldór Nellett hóf í gær lokaferð sína sem skipherra á varðskipinu Þór þegar skipið lét úr höfn í Reykjavík. Þegar varðskipin Þór og Týr mættust á ytri höfninni þeytti áhöfnin á Tý flautuna Halldóri til heiðurs. Ferill Halldórs hjá Landhelgisgæslunni er glæsilegur en hann spannar tæp 50 ár.
Halldór hóf störf sem messi á varðskipinu Ægi árið 1972 og tók þátt í tveimur þorskastríðum. Þá hefur hann starfað sem stýrimaður til fjölda ára á skipum og loftförum Landhelgisgæslunnar.
Hann fór í jómfrúarferð sína sem skipherra árið 1992 en hefur verið fastráðinn skipherra frá árinu 1996.
Halldór Benóný Nellett, skipherra á varðskipinu Þór.
Halldór með togvíraklippur árið 1975