Alls munu allt að 130 liðsmenn norska flughersins taka þátt í verkefninu.
19.2.2021 Kl: 12:30
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að
hefjast með komu flugsveitar norska flughersins.
Alls munu um 130 liðsmenn norska flughersins taka þátt í
verkefninu ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem,
Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli. Flugsveitin kemur til landsins strax eftir helgina
með fjórar F-35 orrustuþotur og hefur aðsetur á öryggissvæðinu á
Keflavíkurflugvelli.
Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum
að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 22. febrúar til 5.
mars ef veður leyfir.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama hætti og fyrri ár og
í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.
Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur
tímabundið gilda strangar sóttvarnarreglur meðan á dvöl norsku
flugsveitarinnar stendur. Framkvæmdin er unnin í samvinnu við Embætti
landlæknis og aðra sem koma að sóttvörnum hér á landi og í Noregi.
Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í
samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars.
F-35 orrustuþota í flugskýlinu á Keflavíkurflugvelli. Mynd: NATO
F-35 þota Norðmanna. Mynd: NATO