Prófanir vegna uppfærslu á ratsjárkerfum

10. september, 2021

Íbúar á Reykjanesi geta orðið varir við flugvélar í lágflugi við Keflavíkurflugvöll og nágrannabyggðir.

10.9.2021 Kl: 13:31


undanförnu hafa umfangsmiklar uppfærslur á ratsjárkerfum
Atlantshafsbandalagsins staðið yfir hér á landi. Lokaáfangi verkefnisins eru viðamiklar
prófanir á kerfinu sem fram fara dagana 13. til 16. september.

Við
verkefnið verða tvær F-16 orrustuþotur pólska flughersins notaðar sem og
sérútbúin flugvél Isavia.

Prófunarflugin
verða að mestu framkvæmd yfir sjó NV og NA af Reykjanesi. Einnig verður flogið
yfir Miðnesheiðinni en þar getur orðið vart við flugvélar í lágflugi við
Keflavíkurflugvöll og nágrannabyggðir. Verkefnið er unnið í samvinnu við og með
heimild Samgöngustofu og Isavia.

Reynt
verður eftir fremsta megni að haga verkefninu þannig að íbúar á Reykjanesi
verði sem minnst varir við flugið.