-Öldumælisdufl og ný legufæri sett út undan Grindavík
27.1.2022 Kl: 11:24
Áhöfnin á varðskipinu Þór sjósetti öldumælisdufl ásamt legufærum undan Grindavík á dögunum. Beita þurfti klókindum til að ná legufærunum upp sem fyrir voru á staðnum.
Páll Geirdal,
skipherra á varðskipinu Þór, segir að áhöfnin hafi borið saman bækur sínar og á
endanum fundið heppilega aðferð til verksins. ,,Við vorum búnir að hugsa aðeins
hvernig við gætum náð upp legufærum eftir að öldumælisdufl slitna frá legufærum
sínum. Ein hugmyndin var að nota dragnótastrengi sem er vírmanilla og sekkur. Hringt
var í Gunnar L. Gunnarsson fyrrverandi stýrimann hjá Landhelgisgæslunni og
athugað hvort hann vissi um strengi á lausu.“
Eftir nokkur símtöl var Gunnar búinn að finna
strengi fyrir áhöfnina hjá Nesfisk í Sandgerði og var haldið þangað til að
sækja strengina. Ein lítil rúlla var í portinu sem hentaði vel til verksins. Að
því búnu var haldið aftur um borð.
,, Við sigldum hring í
kringum staðinn, lögðum strenginn utan um og settum lás að auki þannig að
strengurinn hertist um legufærin. Þetta
gekk afar vel hjá okkur og upp komu 2 milliból, tógi og eitt búnt af
akkeriskeðju, alls um 700kg.“ Segir Páll.
Eftir að áhöfn Þórs hafði
lokið við að hífa gömlu legufærin upp var öldumælisdufl sett út ásamt nýjum legufærum.
Frá aðgerðum áhafnarinnar á Þór.
Verið að setja akkeriskeðjubúntið í kar svo hægt sé að hífa það í land síðar.
Akkeriskeðjan á uppleið.
Öldumælisdufl lagt út ásamt legufærum.