
Georg ræðir um stöðu Landhelgisgæslunnar í dag og framtíðina
8. október 2026
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, er gestur í nýjasta þætti Flugvarpsins í tilefni af 100 ára afmæl...

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fimmta tímanum í dag vegna gróðurelda í Þjóðbrókargili, skammt frá Hólmavík.
Viðbragðsaðilar áttu í erfiðleikum með að komast að eldinum og því varð að kalla þyrlu Landhelgisgæslunnar út til að annast slökkvistörf með slökkviskjólu.
Skjólan var fyllt af vatni í nokkur skipti og vatninu svo sleppt yfir eldinn.
Slökkvistörf gengu vel og á áttunda tímanum hafði eldurinn verið slökktur og þá gat þyrlusveitin haldið aftur til Reykjavíkur.