Sex þyrluútköll um helgina

31. júlí, 2023

Annasöm helgi að baki hjá þyrlusveit Landhelgisgæslunnar

31.7.2023 Kl: 14:02

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var sex sinnum kölluð út um
helgina, frá föstudegi til sunnudags.

Síðdegis á föstudag var áhöfnin á TF-GNA, þyrlu
Landhelgisgæslunnar, kölluð út vegna reiðhjólamanns sem fallið hafði sex metra
niður í gil í Þjórsárdal og misst meðvitund. Þegar þyrla Landhelgisgæslunnar
kom á vettvang var maðurinn kominn til meðvitundar og var tekin sú ákvörðun um
að hann yrði fluttur með sjúkrabíl á Selfoss til skoðunar.

Á laugardag var þyrlusveitin fjórum sinnum kölluð út. Fyrsta
útkallið barst laust fyrir klukkan fjögur síðdegis vegna vélsleðaslyss við Skálpanes
á Langjökli. Kona sem var á vélsleða hafði fallið af honum og var áhöfn
þyrlunnar kölluð út á mesta forgangi. Meiðsli konunnar voru ekki jafn alvarleg
og óttast var í fyrstu. Henni var komið fyrir um borð í þyrlunni. Þegar
þyrlan var að taka á loft frá Langjökli til Reykjavíkur barst annað útkall vegna
slasaðs manns sem féll af hestbaki við Úthlíð. Ákveðið var að halda þangað og
lenda í Úthlíð og kanna ástand mannsins. Þegar þangað var komið reyndist ekki þörf á að flytja hestamanninn með
þyrlunni og var vélsleðakonan flutt á Landspítalann í Fossvogi.

Seinna sama kvöld var þyrlusveitin kölluð út vegna alvarlegra
veikinda um borð í skemmtiferðaskipi sem statt var um 150 sjómílur Suðvestur af
Reykjanesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var komin að skemmtiferða skipinu á
tíunda tímanum og sjúklingurinn var hífður um borð í þyrluna og fluttur á
Landspítalann.

Á sama tíma var hin þyrluvaktin kölluð út vegna slasaðs
björgunarsveitarmanns sem hafði fótbrotnað á gönguleið milli Bláhnjúks og
Brennisteinsöldu, um 2 kílómetra suðvestur af Landmannalaugum. Ekki var
mögulegt að flytja manninn landleiðina og því varð að kalla til þyrlu. Hann var
sóttur af þyrlusveitinni og fluttur á Landspítalann í Fossvogi.

Degi síðar var þyrlusveitin aftur kölluð út að sama slóða við
Bláhnjúk vegna göngumanns sem hafði runnið niður skriðu og slasast. Þyrlan
lenti á sama stað og degi áður, sótti göngumanninn og flutti á Landspítalann í
Fossvogi.

Helgin var sannarlega annasöm hjá þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar.

Uthlid

Þyrlan lenti í Úthlíð þar sem ástand hestamannsins var kannað. Ekki reyndist þörf á að flytja hann með þyrlunni. 

Jokull-1-Frá vettvangi á Langjökli.