Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað verði að skipum og bátum í höfnum.
14.11.2024 Kl: 13:40
Nú er stækkandi straumur og verður stórstreymt næstkomandi
sunnudag. Samhliða gera veðurspár ráð fyrir að á morgun, föstudag, snúist
vindur í norðan og norðvestan hvassviðri eða storm og má því gera ráð fyrir
talsverði ölduhæð fyrir norðan- og norðaustanverðu landinu næstu daga með
tilheyrandi áhlaðanda, og þá um leið hærri sjávarstöðu en sjávarfallaspár gefa
til kynna. Landhelgisgæslan hvetur því til aðgæslu við sjávarsíðuna og að hugað
verði að skipum og bátum í höfnum.
Ölduspákort sem gildir kl 0600 laugardaginn 16. nóvember
2024 (www.sjolag.is).