
Áhöfnum varðskipanna vel tekið
10. mars 2026
Heimsóknir varðskipa Landhelgisgæslunnar vegna aldarafmælisins halda áfram. Um helgina heimsótti varðskipið Þór Flateyri...

Landhelgisgæslan gaf í síðustu viku út 5. útgáfu þessa árs af Tilkynningum til sjófarenda.
Vakin er sérstök athygli á Tilkynningum nr 36-37/2025, upplýsingum varðandi dýpi og leiðréttingar í kortum 51 og 52.
Þessar upplýsingar komu fram við mælingar nú í sumar og talið brýnt að koma þeim strax á framfæri og vekja athygli á þeim.
Einnig eru 4 nýjar útgáfur hafnakorta en það eru, 310-Vestmannaeyjar, 313-Þorlákshöfn, 422-Ólafsvík og 530-Akureyri.
Þessu til viðbótar eru tilkynningar um staðsetningar rannsóknardufla og mörk fiskeldissvæða.
Útgáfu 5 má finna í hlekk hér að neðan.