Vettvangseftirlit með köfun

16. júní, 2025

Köfun er vinsæl tómstundaiðja og mikilvæg atvinnugrein á Íslandi. Hún er einkum stunduð í ferðaþjónustu, til dæmis í Silfru á Þingvöllum, en einnig í tengslum við störf eins og mannvirkjagerð, laxeldi og aðrar framkvæmdir undir yfirborði vatns. Til þess að tryggja öryggi notenda gilda skýrar reglur um köfun hér á landi. Þær má finna í […]

Köfun er vinsæl tómstundaiðja og mikilvæg atvinnugrein á Íslandi. Hún er einkum stunduð í ferðaþjónustu, til dæmis í Silfru á Þingvöllum, en einnig í tengslum við störf eins og mannvirkjagerð, laxeldi og aðrar framkvæmdir undir yfirborði vatns.

Til þess að tryggja öryggi notenda gilda skýrar reglur um köfun hér á landi. Þær má finna í lögum nr. 81/2018 og reglugerð nr. 535/2001. Þar er meðal annars kveðið á um kröfur til þeirra sem stunda köfun eða kenna hana, sem og til búnaðar sem notaður er við köfun.

Samgöngustofa og Landhelgisgæsla Íslands hafa samkvæmt lögum heimildir til að sinna eftirliti með köfunarstarfsemi. Nú hefur verið ákveðið að efla eftirlit á vettvangi á næstu mánuðum. Eftirlitið verður í höndum Landhelgisgæslunnar og hefst í Silfru á Þingvöllum. Í kjölfarið verður farið í skoðanir á öðrum stöðum þar sem köfun fer fram. Markmiðið er að stuðla að öruggri og faglegri köfunarþjónustu fyrir alla notendur.