Sjóliðsforingjaefni í þjálfun hjá Landhelgisgæslunni

23. júní, 2025

Tvö sjóliðsforingjaefni úr bandarísku strandgæslunni dvöldu um borð í varðskipum Landhelgisgæslunnar á dögunum og fengu þjálfun í fjölbreyttum verkefnum á hafsvæðinu umhverfis landið. Landhelgisgæslan og bandaríska strandgæslan hafa um árabil átt farsælt samstarf á ýmsum sviðum. Starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur hlotið þjálfun hjá bandarísku strandgæslunni í gegnum tíðina en þetta var í fyrsta sinn sem sjóliðsforingjaefni […]

Tvö sjóliðsforingjaefni úr bandarísku strandgæslunni dvöldu um borð í varðskipum Landhelgisgæslunnar á dögunum og fengu þjálfun í fjölbreyttum verkefnum á hafsvæðinu umhverfis landið.

Landhelgisgæslan og bandaríska strandgæslan hafa um árabil átt farsælt samstarf á ýmsum sviðum. Starfsfólk Landhelgisgæslunnar hefur hlotið þjálfun hjá bandarísku strandgæslunni í gegnum tíðina en þetta var í fyrsta sinn sem sjóliðsforingjaefni frá háskóla bandarísku strandgæslunnar dvelja um lengri tíma um borð í varðskipum Gæslunnar vegna þjálfunar.

Sjóliðsforingjaefnin stóðu sig afar vel og innan skamms verður þetta unga fólk í stjórnunarstöðum innan strandgæslunnar.

Við hjá Landhelgisgæslunni vonum að reynslan frá Íslandi nýtist þeim í starfi og hlökkum til áframhaldandi samstarfs við bandarísku strandgæsluna.

Á þyrluæfingu

Einar Ingi Reynisson, stýrimaður, ásamt sjóliðsforingjaefnunum.