
Reynir Garðar Brynjarsson, viðhaldsskipulagsstjóri flugtæknideildar, fékk á dögunum viðurkenningu Krabbameinsfélagsins fyrir framlag sitt til sölu á Bleiku slaufunni. Eins og fram kemur á heimasíðu Krabbameinsfélagsins er Reynir þekktur fyrir að fá skemmtilegar hugmyndir og láta þær rætast.
Einn októbermánuð fyrir nokkrum árum var hann að keyra í vinnuna og hugsaði að Krabbameinsfélagið væri bara í næsta nágrenni við skrifstofur Landhelgisgsæslunnar. Í kjölfarið fékk hann þá hugmynd að líta við og kanna hvort hann gæti ekki fengið kassa af slaufum til að selja í hádegishléinu í flugskýli Landhelgisgæslunnar. Þetta hefur Reynir nú gert í nokkur ár með frábærum árangri.
,,Það má í raun segja að þessi skyndiákvörðun Reynis hafi undið hressilega upp á sig í ár þegar hann fékk vini sína í lið með sér og þeir settu einnig upp bleika popp-up búð í hádeginu á sínum vinnustöðum.
Reynir segir það hafa verið alveg magnað hvað allir voru til í þetta og tóku vel í þetta framtak og að það hafi myndast alveg geggjuð stemming. Hann segir fólk upp til hópa vera gott fólk og vilji láta gott af sér leiða en við gleymum okkur svolítið í amstri dagsins. Það að gera fólki kleift að láta gott af sér leiða, í hádegishléinu á sínum vinnustað, hafi verið hans leið til gefa fólki tíma til að taka þátt og hjálpa til – því það er svo ótrúlega gott fyrir hjartað. Reynir vonar að fleiri taki hann til fyrirmyndar.“ Segir á heimasíðu Krabbameinsfélagsins.
Við hjá Landhelgisgæslunni erum stolt af okkar manni sem hefur lagt þessu mikilvæga málefni lið með einstökum dugnaði undanfarin ár.
