Kortaskrá 2026 gefin út

19. janúar, 2026

2026 útgáfa af Kortaskrá hefur verið gefin út og má finna hér.

Kortaskrá inniheldur upplýsingar um gild sjókort sem Landhelgisgæsla Íslands – Sjómælinga- og siglingaöryggisdeild hefur gefið út og eru í gildi þegar skráin er gefin út.

Þar má finna almennar upplýsingar um útgáfur Sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar.

Nokkrir flokkar sjókorta eru til staðar en það eru;

Hafna- og Aðsiglingakort, Strandsiglingakort, Yfirsiglingakort, Rafræn sjókort og Ýmis kort.

Um borð í sérhverju skipi skulu vera opinber sjókort, prentuð og/eða rafræn (ENC).

Sjókort eru sérhæfð kort ætluð til að mæta þörfum sjófarenda, en þau sýna m.a. dýpi, botngerð, lögun og einkenni strandar, hættur, sjómerki og staðsetningu og ljóseinkenni vita.

Sjómælinga- og siglingaöryggisdeild Landhelgisgæslunnar uppfærir reglulega kortaskrá sem sýnir hvaða sjókort (og útgáfur þeirra) eru í gildi. 

Kortaskránni, ásamt öðrum útgáfum sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar, er ætlað að stuðla að öryggi siglinga á hverjum tíma.