
Flugsveit sænska flughersins er væntanleg til landsins í byrjun febrúar, en þá hefst loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins á Íslandi. Flugsveitin samanstendur af sex JAS Gripen orrustuþotum og um 110 liðsmönnum, en um er að ræða fyrstu loftrýmisgæslu Svíþjóðar á Íslandi.
Flugsveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.
Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlangshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti úti fyrir ströndum Íslands, auk þess sem danski flugherinn hefur viðveru hér á landi í tengslum við æfinguna Noble Defender.
Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia.
Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum á varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum í fyrstu viku febrúarmánaðar. Ráðgert er að loftrýmisgæslu sænska flughersins ljúki á Íslandi í mars.
Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki um miðjan mars.