
Kennslumyndbönd um móttöku þyrlu á landi og slökkvistörf komin í loftið
14. ágúst 2026
Sumarið 2025 fór fram umfangsmikið samstarfsverkefni Brunamálaskólans, Landhelgisgæslu Íslands, Brunavarna Árnessýslu, S...

Áhöfnin á varðskipinu Freyju æfði um helgina með áhöfn danska varðskipsins Thetis. Æfingin snerist m.a. um að æfa sameiginleg viðbrögð áhafnanna við leka í lest Freyju. Aðgerðirnar hófust á að óskað var eftir aðstoð Thetis og skömmu síðar kom hluti áhafnar Thetis á léttbát með búnað til að bregðast við lekanum.
Þá voru viðbrögð sömuleiðis æfð við slysi sem líkt var eftir að hefði átt sér stað meðan á aðgerðunum stóð og var læknateymi danska varðskipsins kallað út í kjölfarið.
Æfingin gekk afar vel og var sérlega lærdómsrík fyrir alla aðila. Æfingar sem þessar eru liður í mikilvægu og öflugu samstarfi danska sjóhersins og Landhelgisgæslunnar.











