Slasaður skipverji sóttur af þyrlusveit

9. febrúar, 2026

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan skipverja á erlendum togara um 100 sjómílur vestur af Snæfellsnesi á föstudag. Hífingar gengu afar vel enda var veðrið á svæðinu með besta móti. Að þeim loknum var flogið með manninn til Reykjavíkur þar sem honum var komið undir læknishendur á Landspítalanum.