
Landhelgisgæslan heldur margvíslegar æfingar með björgunarsveitum. Tilgangurinn er að undirbúa viðbrögð við slysum og geta á árangursríkan hátt bjargað fólki sem er í hættu statt.
Sem dæmi má nefna sameiginlegar æfingar með Flugbjörgunarsveitinni en nokkrum sinnum á ári fara fallhlífastökkvarar sveitarinnar með eftirlitsflugvélinni TF-SIF og stökkva út úr henni í mismunandi mikilli hæð.
Flugvélin er þannig búin að hægt er að opna dyr hennar á flugi og varpa út úr henni björgunarbúnaði. Þessi möguleiki gagnast einnig fallhlífastökkvurum.
Á sunnudag var farið með 9 meðlimi sveitarinnar í flug og stukku 7 fallhlífastökkvarar úr vélinni í um 6000 feta hæð yfir Hellu. Að auki var vörum varpað úr vélinni á sama stað en í lægri hæð.
Æfingin heppnaðist afar vel.


