Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 2 – 2026

27. febrúar, 2026

Í gær, fimmtudaginn 26.febrúar voru Tilkynningar til sjófarenda sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslands, sjá hér.

Þar má finna tilkynningu um nýjan stað á ljósdufli við Þorlákshöfn en töluverðar framkvæmdir hafa verið í Þorlákshöfn með tilheyrandi breytingum á mannvirkjum og leiðarmerkjum.

Framkvæmdir hafa verið við fleiri hafnir landsins og mikilvægt að forráðamenn hafna upplýsi t.d. Vegagerðina um fyrirhugaðar framkvæmdir, þar undir falla einnig breytingar á leiðarmerkjum.

Ekki er síður mikilvægt að upplýsingar um breytingar skili sér til Landhelgisgæslu, Sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar.

Sjómælinga- og siglingaöryggisdeild sér um að slíkar breytingar skili sér í viðeigandi sjókort, bæði á pappír og rafræn, sem og upplýsingarit eins og Vitaskrá.

Ágæt dæmi um þetta ferli liggur nýjum útgáfu tveggja hafnarkorta,  en það eru kort númer 418 – Súðavík, og kort númer 710 – Borgarfjörður eystri.

Frávik eða breytingar leiðarmerkja er komið til sjófarenda með ýmsum hætti, fyrst í stað getur það verið í formi siglingaviðvarana sem stjórnstöð Landhelgisgæslu / Vakstöð siglinga, sendir út á tali (talstöð) og NAVTEX (fjarriti). 

Ef frávikið eða breytingin er varanleg er hún birt í Tilkynningum til sjófarenda, sem eru öllu jöfnu gefnar út mánaðarlega. 

Samhliða því eru upplýsingar sem eru aðgengilegar á vefnum eins og Vitaskrá og Tilkynningar í sjókort, uppfærð. 

Þá geta slík frávik eða breytingar kallað á nýja útgáfu (uppfærslu) sjókorta, sjá Kortaskrá.

Fleiri Fréttir