Fréttasafn

Stefna okkar er að halda almenningi, stjórnvöldum og starfsfólki vel upplýstu um starfsemina og stuðla þannig að jákvæðri og sterkri ímynd Landhelgisgæslunnar í þjóðfélaginu.


Fréttayfirlit


Stórstreymt um Jólin - fullt tungl á Aðfangadag - 20.12.2007

Sjavarhaed_flod
Fimmtudagur 20. desember 2007

Landhelgisgæsla Íslands – Sjómælingasvið vill vekja athygli á því að fullt tungl er á Aðfangadag og að vanda, stórstreymi því samfara. Það er því ástæða fyrir sjómenn og aðra að fylgjast vel með veðurspá og loftþrýstingi.

Landhelgisgæsla Íslands og Landmælingar Íslands gera með sér samstarfssamning um landupplýsingar - 19.12.2007

Samstarfssamn_LHG_LMI_GLar_MGudm_18122007

Miðvikudagur 19. desember 2007


Í gær undirrituðu forstjórar Landhelgisgæslu Íslands og Landmælinga Íslands samstarfssamning um landupplýsingar. Markmið samningsins er að auka samstarf stofnananna á sviði kortagerðar, landfræðilegra upplýsingakerfa, landmælinga og til að samnýta sérþekkingu og gögn. Stofnanirnar munu koma sér saman um sameiginlega verkefnaskrá er varðar þessi atriði. Einnig munu þær sameignlega vekja athygli á gildi landupplýsinga á Íslandi. Gengið var frá verkefnaskrá fyrir komandi starfsár sem innifelur meðal annars þarfagreiningu vegna söfnunar gagna til kortagerðar af Breiðafirði og frumvinnu vegna sameiginlegrar skilgreiningar á strandlínu Íslands.

Landhelgisgæsla Íslands gerir samstarfssamning við skipaumferðarmiðstöðina í Vardö í Noregi - 14.12.2007

risaoliuskipid_dundee_feb_2003
Föstudagur 14. desember 2007

Landhelgisgæsla Íslands gerði í vikunni samstarfssamning við Vardö VTS (e.vessel traffic service), sem er skipaumferðarmiðstöð í norður-Noregi, sem vaktar meðal annars, alla skipaumferð á hafsvæðinu undan norður og norðvestur Noregi.

Starfssemi stöðvarinnar hófst 1.janúar á þessu ári. Megin hlutverk Vardö VTS að fylgjast með allri skipaumferð á stóru svæði undan NV-strönd Noregs og einnig að bregðast við ef hættuástand skapast, t.d. ef skip verða fyrir vélarbilun, þá bregst stöðin við því með dráttarskipum sem tiltæk eru hverju sinni.

Súlan EA 300 strandar við innsiglinguna til Grindavíkur - 7.12.2007

Föstudagur 7. desember 2007

Í dag klukkan 09:55 barst Vaktstöð siglinga/ Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar tilkynning um að Súlan EA 300 væri strand vestan við innsiglinguna til Grindavíkur. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar Oddur V. Gíslason og björgunarbátarnir Villi, Árni í Tungu og Áskell voru tafarlaust sendir á staðinn. Varðskip var sent áleiðis semog þyrla Landhelgisgæslunnar. Fljótlega tókst að koma taug frá Oddi V. í Súluna og eru skipin nú á leið til Grindavíkurhafnar.

Áhöfn Vs. Ægis og varð- og stýrimenn úr flugdeild LHG á námskeiði hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins - 6.12.2007

Slokkvinamsk_LHG_SHS_03122007_eldur1
Fimmtudagur 6. Desember 2007

Síðastliðinn þriðjudag, 3. desember, tók áhöfn varðskipsins Ægis ásamt stýrimönnum og vaktmönnum úr flugdeild þátt í námskeiði og æfingum í fyrstu hjálp og slökkvistörfum hjá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins (SHS).

Nýtt sjókort af Austfjörðum - 6.12.2007

Sjomael_k73_ny_utg_06122007_nytt_kort
Fimmtudagur 6. desember 2007

Nýtt sjókort af Austfjörðum er komið út. Kortið sem heitir Glettinganes – Hlaða og er nr. 73 nær frá Glettinganesi, sunnan Borgarfjarðar eystri að Hlöðu í Breiðdalsvík og er í mælikvarðanum 1:100 000. Það leysir af hólmi eldra kort með sama nafni og númeri . Gamla kortið var gefið út af „det kongelige Søkort-Arkiv“ í Kaupmannahöfn í október 1944. Dýptarmælingarnar sem sú útgáfa kortsins byggir að stærstum hluta á voru gerðar árið 1898 eða fyrir 109 árum.

Grunnskólabörn á Fáskrúðsfirði heimsækja varðskipið Tý - 4.12.2007

Tyr_born_Faskrudsf_heims_03122007
Þriðjudagur 4. desember 2007

Nemendur í 1 – 3 bekk Grunnskólans á Fáskrúðsfirði heimsóttu varðskipið Tý á köldum vetrarmorgni, þegar skipið kom inn til Fáskrúðsfjarðar fyrir skömmu. Alls komu 24 börn um borð ásamt 5 kennurum og foreldrum. Tekið var á móti börnunum við skipshlið. Þá var gengið á skipsfjöl þar sem skipherra varðskipsins Sigurður Steinar Ketilsson, Pálmi Jónsson yfirstýrimaður og Einar Örn Einarsson 2. stýrimaður tóku á móti þeim.

Jólaball Landhelgisgæslunnar - 3.12.2007

Jolaball_02122007_joli_thyrla
Mánudagur 3. desember 2007

Í gær, sunnudag, var árlegt jólaball Landhelgisgæslunnar haldið. Þar komu starfsmenn saman ásamt börnum sínum og skemmtu sér konunglega. Gáttaþefur mætti á staðinn og hafði með sér aðstoðarfólkið Birgittu Haukdal og Magna. Þau stigu á stokk, sungu og skemmtu börnum og fullorðnum. Gáttaþefur hafði auk þess lítilræði í poka sínum sem hann útdeildi til barnanna.

Dómsmálaráðherra Noregs og sendiherra Noregs á Íslandi heimsækja Landhelgisgæsluna. Samstarfssamningur um þyrlukaup. - 30.11.2007

BB_KS_undirritun_301120070001
Föstudagur 30. nóvember 2oo7

Í dag heimsóttu norski dómsmálaráðherrann, Knut Storberget og Margit Tveiten sendiherra Noregs á Íslandi, ásamt fylgdarliði, Landhelgisgæsluna. Tilefni heimsóknarinnar var samstarfssamningur sem ráðherrann og Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra undirrituðu, í morgun, um samstarf Íslands og Noregs um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrla.

Flutningaskipið Axel - 28.11.2007

Miðvikudagur 28.nóvember 2007

Rétt fyrir klukkan 7:00 í morgun fór skipstjóri flutningaskipsins Axels fram á að fá öflugar dælur um borð í skipið þar sem lensidælur þess höfðu stíflast. Skipið var þá statt undan Vopnafirði. Björgunarskipið Sveinbjörn Sveinsson fór á staðinn með öflugar dælur frá slökkviliðinu á Vopnafirði. Gerðar voru ráðstafanir til að fá viðbótar dælur og hafnaryfirvöld á Vopnafirði sett í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegrar komu skipsins. Vel gengur nú að dæla sjó úr skipinu og hefur það tekið stefnu á Akureyri. Varðskip mun koma að Axel um hádegisbil, með öflugar dælur og setja mannskap um borð. Varðskipið mun svo fylgja flutningaskipinu til hafnar.

Flutningaskipið Axel heldur til hafnar á Fáskrúðsfirði - 27.11.2007

Þriðjudagur 27. nóvember 2007 – uppfært kl. 14:00

Eftir samráð Landhelgisgæslu Íslands, Umhverfisstofnunar, flokkunarfélags skipsins ásamt skipstjóra þess og útgerð hefur verið ákveðið að flutningaskipið Axel sem skemmdist er það strandaði við Hornafjarðarós í morgun, haldi til hafnar á Fáskrúðsfirði.

Flutningaskipið Axel komið af strandstað, gengur fyrir eigin vélarafli - 27.11.2007

Flutnskip_Axel_strand_Hornafj_27112007_2

Þriðjudagur 27.nóvember 2007 - uppfært kl.10:45

Flutningaskipið Axel, sem strandaði við Hornafjarðarós í morgun er komið af strandstað. Enginn olíuleki virðist vera frá skipinu og dælur hafa við að dæla þeim sjó sem berst í skipið. Axel gengur undir eigin vélarafli áleiðist til Berufjarðar þar sem áætlað er að skipið fari til hafnar. Björgunarskipið Ingibjörg fylgir skipinu áleiðis þar til varðskip Landhelgisgæslunnar mætir skipunum og mun varðskipið fylgja Axel til hafnar.

Flutningaskipið Axel strandar við Hornafjarðarós - 27.11.2007

Flutnskip_Axel_strand_Hornafj_27112007
Þriðjudagur 27.nóvember. 2007

Klukkan 08:20 barst Vaktstöð siglinga/Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar boð vegna flutningaskipsins Axel sem strandað hafði á Borgeyjarboða við Hornafjarðarós. Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar, Ingibjörg frá Hornafirði ásamt lóðsbáti Hornafjarðarhafnar fóru tafarlaust á staðinn.

Stýrimenn/sigmenn og læknar í áhöfnum á þyrlum á fjallamennskuæfingu - 26.11.2007

Fjallamennskunamsk_Villi-Snorri-Hannes-Frikki-Tobbi
Mánudagur 26. Nóvember 2007

Um helgina fóru stýrimenn/sigmenn og læknar í áhöfnum á þyrlum LHG í árlega fjallaæfingu með undanförum Slysvarnarfélagsins Landsbjargar. Æfing sem þessi er haldin í upphafi hvers vetrar og miðar að því að þjálfa þá áhafnarmeðlimi er starfa fyrir utan þyrlurnar í meðferð mannbrodd og ísaxa til notkunar á fjöllum og jöklum að vetri. Þá er æfð notkun trygginga og sigbúnaðar í klettum.

Vélarvana dragnótarbátur tekinn í tog - 24.11.2007

Jon_a_Hofi_i_togi_24112007
Laugardagur 24. nóvember 2007

Um klukkann 8:00 í morgun bárust Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, boð frá Jóni á Hofi ÁR-62, sem var vélarvana um 25 sjómílur NV af Garðskaga. Jón á Hofi er 35 metra, 334 brl. dragnótarbátur með 8 manns í áhöfn (leiðrétt 26.11.2007 SRS). Varðskip fór á staðinn og kom taug í skipið um klukkan 11:15. Varðskipið er með Jón á Hofi í togi, ferðin sækist vel og eru skipin væntanleg til Reykjavíkur um eftirmiðdaginn.

Landhelgisgæslan færir út kvíarnar - 23.11.2007

SYN_flugskyli
Föstudagur 23. nóvember 2007

Í dag voru Fokker flugvél Landhelgisgæslunnnar, TF-SYN og þyrla TF-GNA, flutt í aðstöðu sem Landhelgisgæslan hefur tímabundið fengið til afnota á Keflavíkurflugvelli. Við stækkun flugflotans hefur þrengt að í flugskýlinu við Reykjavíkurflugvöll þar sem Landhelgisgæslan hefur nú fjórar þyrlur til ráðstöfunar, auk Fokker flugvélarinnar.
Síða 1 af 7