-Þór á sjó og Týr til
taks. Umsjónarmenn skipa og báta hvattir til að huga að þeim.
13.2.2020 Kl: 15:25
Landhelgisgæslan er með aukinn viðbúnað vegna óveðursins sem
gengur yfir landið á morgun. Varðskipið Þór hélt frá Reykjavík klukkan 15 í dag
og heldur á Vestfirði. Alla jafna er eitt varðskip á sjó hverju sinni en vegna
veðursins var ákveðið að áhöfnin á varðskipinu Tý væri í viðbragðsstöðu í
Reykjavík og tilbúin að halda á sjó ef á þarf að halda.. Enn fremur eru tvær
þyrlur til taks auk tveggja þyrluáhafna.
Þá hvetur Landhelgisgæslan eigendur og umsjónarmenn skipa og
báta að huga að þeim vegna þessa slæma veðurs. Auk þess bendir LHG á að öldu-
og vindáhlaðandi, samfara þeim lága loftþrýstingi sem spáð er, geti bætt
talsvert við sjávarhæð í höfnum umfram það sem útreiknaðar sjávarfallatöflur
gefa til kynna.
Varðskipið Þór. Mynd: Guðmundur Birkir Agnarsson.