
Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 11 – 2026.
1. október 2026
S.l. þriðjudag var nýjasta útgáfa Tilkynninga til sjófarenda, send áskrifendum og birt á vef Landhelgisgæslu Íslands, sj...

Varðskipið Þór er nú komið með Hoffellið í tog en skipið varð vélarvana um 160 sjómílur suðvestur af Færeyjum.
Varðskipið Þór var komið að Hoffellinu rétt fyrir ellefu í morgun og tók það áhöfnina á Þór aðeins tæpa tvo tíma að koma taug á milli skipanna þrátt fyrir töluverða ölduhæð. Þór er nú kominn á stefnu til Reykjavíkur með Hoffellið í drætti og er áætlað að varðskipið komi með Hoffellið til hafnar í vikulokin.
Meðfylgjandi myndir tók áhöfnin á Þór af vettvangi.


