Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 11 – 2026.

1. október, 2026

S.l. þriðjudag var nýjasta útgáfa Tilkynninga til sjófarenda, send áskrifendum og birt á vef Landhelgisgæslu Íslands, sjá hér: Tts_11_2026_70-82_29092026.pdf

Í þessari nýjustu útgáfa má finna eftirfarandi:

Breyting er á sjónarlengd (drægni) í innsiglingarvita Sandgerði.

Hafrannsóknarstofnun hefur sett út neðansjávar-rannsóknartæki á tveim stöðum í Faxaflóa, 9 tæki á hvoru svæði.

Þá er tilkynnt um tilraunasvæði í Húnaflóa, eitt þeirra við Heggstaðanes og tvö önnur í Steingrímsfirði.

Tilkynnt er um staðsetningu á nýrri vatnslög milli Bakkafjöru og Heimaeyjar (Vestmannaeyja).

Leiðréttingar á staðsetningum öldudufla við Landeyjarhöfn, Surtsey og Kögur.

Þá hefur öldudufl út af Alviðru verið fjarlægt.  Þar er þó enn rannsóknartæki með ljóslausu dufli á svæðinu.

Leiðrétta þarf ljóseinkenni öldudufls við Þorlákshöfn, í korti 31.

Þá er tilkynnt um framkvæmdir innan hafnar í Þorlákshöfn við Flataskersbryggju.

Að lokum er upplýst um breytingu á NAVTEX sendi sem var áður í Grindavík en hefur verið færður til Reykjavíkur.

Upplýsingar um ofangreindar tilkynningar ásamt fyrri tilkynningum má finna hér: Tilkynningar til sjófarenda – Notices to mariners | Landhelgisgæsla Íslands

Upplýsingar um gild sjókort og tilkynningar í þau, má finna hér: Listi-yfir-Tts-med-efni-tilkynningar_IS-EN.pdf

Upplýsingar um siglingaviðvaranir í útlestri, má finna hér: Siglingaviðvaranir | Landhelgisgæsla Íslands

Fleiri Fréttir