

Landhelgisgæslan fagnaði 100 ára afmæli sínu um helgina. Hátíðardagskráin hófst með því að þyrlu Landhelgisgæslunnar var lent við Hörpu.
Frú Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, flutti ávarp, sem og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði og fyrrverandi forseti Íslands, og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands.
Karlakórinn Fóstbræður söng undir stjórn Árna Harðarsonar og við undirleik Óskars Einarssonar. Sigríður Thorlacius og Páll Rósinkranz komu einnig fram. Björn Bragi Arnarsson var kynnir.
Forseti Íslands, dómsmálaráðherra og forstjóri Landhelgisgæslunnar tóku á móti fyrstu eintökum nýrrar bókar sem ber heitið Svipmyndir úr 100 ára sögu Landhelgisgæslunnar. Bókin er eftir Guðna Einarsson og Guðjón Arngrímsson og er gefin út af bókaútgáfunni Hólum.
Hér fyrir neðan má sjá upptöku af afmælisfögnuðinum sem og ljósmyndir sem Árni Sæberg tók.
























































































