
Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 11 – 2026.
1. október 2026
S.l. þriðjudag var nýjasta útgáfa Tilkynninga til sjófarenda, send áskrifendum og birt á vef Landhelgisgæslu Íslands, sj...

15.06.2018 Kl:18:45
Forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, steig á skipsfjöl á varðskipinu Þór síðdegis ásamt fylgdarliði. Forseti heimsækir Hrafnseyri við Arnarfjörð í fyrsta sinn síðan hann tók við embætti en áætlað er að Þór verði kominn vestur í fyrramálið. Skipherra á Þór er Halldór Benóný Nellett og með í för er Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar. Þetta er í fyrsta sinn í rúm 30 ár sem forseti Íslands gistir um borð í varðskipi en það gerði frú Vigdís Finnbogadóttir síðast á níunda áratug síðustu aldar en hún var þá á leið til Hrafnseyrar.
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Varðskipið Þór lætur úr höfn með forseta og fylgdarlið um borð.