Áhöfnin á TF-SIF kom auga á bát með tæpt tonn af fíkniefnum

-Áhöfnin á TF-SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, hefur undanfarnar vikur sinnt landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á vegum Frontex, Landamærastofnunar Evrópu.

  • IMG_5004

11.8.2020 Kl: 13:11

Spænska lögreglan, Guardia Civil, í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands handtók fjóra og gerði 963 kíló af hassi upptæk á dögunum. Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var við landamæraeftirlit á vestanverðu Miðjarðarhafi þegar hún kom auga á hraðbát með torkennilegan varning um borð. Höfuðstöðvum lögreglunnar í Madrid var þegar gert viðvart og á meðan fylgdi TF-SIF bátnum eftir inn á Gíbraltarsund í ríflega tvo tíma. Þar mætti spænska lögreglan á hraðbát og handtók fjóra smyglara og gerði tæpt tonn af hassi upptækt.

Samkvæmt fréttatilkynningu spænsku lögreglunnar voru smyglararnir frá Marokkó, Belgíu og Frakklandi.

Áhöfnin á TF-SIF hefur frá júnímánuði haft aðsetur á Malaga á Spáni og sinnt landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á Frontex. Ferðin hefur verið var árangursrík. Áhöfnin hefur tekið þátt í 41 verkefni og stuðlað að björgun 78 flóttamanna og komið upp um fjölmarga smyglara sem reynt hafa að flytja fíkniefni til Spánar.

TF-SIF lagði af stað til Íslands frá Spáni í dag og er væntanleg til landsins síðar í vikunni.

TF-SIF kemur auga á smyglara

Björgun flóttamanna

EftirforBátnum var fylgt eftir af áhöfninni á TF-SIF í ríflega tvo tíma áður en lögreglan mennirnir voru handteknir.

Smyglarar-handteknirGuardia Civil fer um borð í bátinn. Tæpt tonn af hassi var gert upptækt.Flottamenn-Midjardarhaf-2020Áhöfnin á TF-SIF stuðlaði að björgun 78 flóttamanna á Miðjarðarhafi í sumar.FikniefnabaturÁhöfnin á TF-SIF kom auga á torkennilega pakka um borð í bátnum.