

Í vikunni tók starfsfólk Landhelgisgæslunnar á móti fulltrúum finnskra fyrirtækja og finnska sendiráðsins á Íslandi. Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna sér starfsemi fyrirtækja og viðbragðsaðila hér á landi og efla tengsl og þekkingarmiðlun.
Finnsku sendinefndinni var kynnt starfsemi Landhelgisgæslunnar þar sem sérstök áhersla var lögð á þau fjölmörgu þróunar- og umbótaverkefni sem stofnunin vinnur að á sviði eftirlits, löggæslu, leitar og björgunar.
Í heimsókninni fengu gestirnir meðal annars að kynnast starfsemi stjórnstöðvarinnar í Skógarhlíð og verkefnum sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar Landhelgisgæslunnar. Þá heimsóttu þeir séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar þar sem þeir fengu innsýn í starfsemi sveitarinnar, sérhæfingu hennar og þann búnað sem hún hefur yfir að ráða.
Heimsóknin gaf jafnframt tækifæri til samtals um þróun, nýsköpun og möguleika á frekara samstarfi á sviðum sem tengjast öryggi, viðbragðsgetu og starfsemi á sjó.


