Fyrsta þjónustuheimsókn bandarísks kafbáts.
26.4.2023 Kl: 10:00
Bandaríski kjarnorkukafbáturinn USS San Juan kom í dag í stutta þjónustuheimsókn á hafssvæðið norðvestur af Garðskaga til að taka kost. Landhelgisgæsla Íslands leiddi framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið.Varðskipið Þór fylgdi kafbátnum frá því að hann kom upp á yfirborðið við mörk landhelginnar og fylgdi honum á meðan á heimsókninni stóð. Móttaka kafbátsins var vel undirbúin og framkvæmd í samræmi við verklagsreglur sem unnar voru í náinni samvinnu fyrrgreindra stofnanna og utanríkisráðuneytisins. Vel gekk að flytja kostinn um borð í kafbátinn.Nánar má lesa um heimsóknina á vef stjórnarráðsins. https://www.stjornarradid.is/…/Bandariskur-kafbatur-i…/
Kafbáturinn USS San Juan
Áhöfnin á Þór kemur vistum um borð.
Varðskipið Þór og kafbáturinn úti fyrir Garðskaga.
Vistum komið fyrir um borð.