Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hefst að nýju

3. september, 2018

Um 140 liðsmenn flughersins taka þátt í verkefninu auk starfsmanna frá stjórnstöð NATO í Uedem.

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland
er að hefjast að nýju með komu flugsveitar ítalska flughersins. Alls munu um
140 liðsmenn flughersins taka þátt í verkefninu auk starfsmanna frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center).
Flugsveitin kemur til landsins með fjórar Eurofighter Typhoon F-2000
orrustuþotur.Gera má ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og
Egilsstöðum á tímabilinu 6. til 12. september.Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi
við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Flugsveitin verður staðsett á
öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.  Ráðgert er að verkefninu ljúki í
byrjun október. 

Landhelgisgæsla Íslands sinnir framkvæmd verkefnisins samkvæmt samningi sem gerður var við utanríkisráðuneytið á grundvelli varnarmálalaga nr. 34/2008. Að auki er verkefnið unnið í samvinnu við Isavia.

20170410_fotogiovannicolla_gcp_2570Um 140 liðsmenn flughersins taka þátt í verkefninu. Ljósmynd: Giovanni
Colla