Loftrýmisgæsla ítalska flughersins að hefjast

Aðflugsæfingar dagana 26. apríl - 6. maí.

  • Italy-Iceland-F-35-5

24.4.2022 Kl: 21:36

Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast með komu flugsveitar ítalska flughersins. Þetta er í sjötta sinn sem Ítalir leggja Atlantshafsbandalaginu til flugsveit vegna verkefnisins en flugsveit Ítala var seinast hér á landi fyrir tveimur árum. Flugsveitin annast loftrýmisgæsluna ásamt starfsmönnum í stjórnstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center) og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, (NATO Control and Reporting Center-Keflavik).

Ítalska flugsveitin kemur til landsins á morgun, mánudaginn 25. apríl, með fjórar F-35 orrustuþotur og 135 liðsmenn. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu frá 26. apríl til 6. maí. Framkvæmd verkefnisins er með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.

Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli en þar dvelja einnig flugsveitir bandaríska sjóhersins við kafbátaeftirlit. Landhelgisgæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðuneytisins og í samvinnu við Isavia. Loftrýmisgæslunni lýkur í lok júní.

Italy-Iceland-F-35-1Ítalska flugsveitin kemur hingað til lands með fjórar F-35 orrustuþotur.

Italy-Iceland-F-35-2-800x445F-35 flugvél ítalska flughersins hér á landi árið 2020.