Neðansjávarfar prófað í varðskipinu Þór

Prófanir gengu vel

  • IMG_1533
12.11.2018 Kl: 16:15

Prófanir á nýjasta neðansjávarfari Teledyne Gavia ehf. fóru fram í varðskipinu Þór á dögunum. Farið nefnist SeaRaptor en það getur náð 6000 metra dýpi og hefur fjölda mælitækja sem nýtast við athugun sjávarbotnsins. 

Báturinn hefur verið í þróun undanfarin ár en í prófununum sem fram fóru í varðskipinu komst hann í fyrsta sinn neðar en 100 metra. Þekking áhafnarinnar nýttist vel við að sjósetja bátinn en töluverða lagni þarf til að koma honum á djúpsævi þar sem hann er 5,6 metra langur og yfir 1 tonn á þyngd. 

Prófanirnar gengu vel sem og sjósetningin en mikilvægt þótti að prófa búnaðinn við krefjandi aðstæður í varðskipinu Þór.

IMG_1539Báturinn sjósettur.

IMG_1536SeaRaptor kemst á 6000 metra dýpi.

IMG_1526Halldór Benóný Nellett, skipherra á Þór, fylgist með prófunum. 

IMG_1551_1542039401203Báturinn hefur fjölda mælitækja sem nýtast við athugun sjávarbotnsins.

IMG_1545Áhöfnin á varðskipinu Þór aðstoðaði við sjósetningu bátsins.

IMG_1533