Þyrlusveitin sótti sjúkling langt á haf út

12. október, 2022

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fór í langt sjúkraflug á haf út síðdegis í gær vegna bráðra veikinda um borð í skemmtiferðaskipi.

12.10.2022 Kl: 15:31

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fór í langt sjúkraflug á haf
út síðdegis í gær vegna bráðra veikinda um borð í skemmtiferðaskipi. Áhöfnin á
TF-GRO var kölluð út á fimmta tímanum vegna
veikindanna sem voru um borði í farþegaskipinu Ambience sem statt var um 160
sjómílur út af Garðskaga.

Þegar þyrlan nálgaðist skipið var skipstjóra þess gefnar
leiðbeiningar um stjórntök og hraða vegna hífingarinnar frá skipinu. Skipið var
beðið um að beygja upp í vind og hægja ferðina niður í sex hnúta ferð.

Sigmaður og læknir þyrlunnar fór um borð í skipið við
bakborðshorn þess eftir að tengilínu var slakað niður. Þegar um borð var komið
var hugað að sjúklingnum og hann undirbúinn fyrir hífingu um borð í þyrluna.

Þegar búið var að búa um sjúklinginn var tekið á móti króknum,
læknirinn hélt fyrstur upp og því næst var sjúklingurinn hífður upp í börunum.
Sigmaður þyrlunnar fór síðastur upp með farangur sjúklingsins.

Að hífingum loknum
var áhöfn skipsins þakkað fyrir samstarfið og haldið til Reykjavíkur.
Skipstjóri skemmtiferðaskipsins hafði sérstaklega orð á hve hratt verkefnið gekk
fyrir sig og þakkaði þyrlusveit Landhelgisgæslunnar innilega fyrir snör
viðbrögð.

Meðfylgjandi myndband sýnir hvernig verkefnið gekk fyrir sig
í gær.

Sjúklingur sóttur með þyrlu

Mynd1_1665588730743Læknir þyrlunnar fer um borð í skemmtiferðaskipið. 

Mynd2_1665588730597Sjúklingurinn undirbúinn fyrir hífingu. 

Daniel-hjaltasonDaníel Hjaltason, spilmaður, tekur á móti lækni þyrlunnar. 

Skipinu-thakkad-fyrir-Áhöfn skipsins þakkað fyrir.