Töluverður viðbúnaður vegna fiskiskips sem varð vélarvana úti fyrir Berufirði

-Þyrla Landhelgisgæslunnar, björgunarskip Landsbjargar á Hornafirði og bátur Fiskeldis Austfjarða kölluð út.

  • Nota2_1600696453556

30.9.2020 Kl: 00:19

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á ellefta tímanum í kvöld vegna 160 tonna fiskiskips sem varð vélarvana suðaustur af Berufirði. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá áhöfn fiskiskipsins sem var statt um 3 sjómílur frá landi, þar sem næst var. Þrír voru um borð og voru þeir tilbúnir að kasta út t akkeri þar sem álandsvindur var á svæðinu.

Áhöfnin á TF-EIR var stödd á Reykjavíkurflugvelli þegar útkallið barst og gat brugðist hratt við. Að auki var björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Hornafirði kallað út auk báts Fiskeldis Austfjarða sem meðal annars var mannaður björgunarsveitarmönnum frá Djúpavogi. TF-EIR tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 22:50 og skömmu síðar tókst áhöfn fiskiskipsins að koma vél þess í gang og sigldi austur fyrir Papey á ákjósanlegri stað ef skipið yrði aftur vélarvana.

Þyrlan hélt ferð sinni áfram til öryggis en björgunarskipið frá Hornafirði var afturkallað. Laust fyrir miðnætti var bátur Fiskeldis Austfjarða kominn að fiskiskipinu úti fyrir mynni Berufjarðar og héldu þau í samfloti áleiðis inn á Djúpavog. Þegar aðstæður voru orðnar öruggar var þyrla Landhelgisgæslunnar afturkölluð en þá var TF-EIR stödd við Ingólfshöfða.

Gert er ráð fyrir að fiskiskipið og bátur Fiskeldis Austfjarða verði komin á Djúpavog á milli hálf eitt og eitt í nótt.