Margvísleg verkefni áhafnar varðskipsins Þórs

Til að varðskipið kæmist að bryggju þurfti að senda léttbát með dýptarmæli sem skannaði höfnina til að athuga hvort einhver fyrirstaða væri í höfninni.

  • Image00005

16.1.2020 Kl: 15:49

Varðskipið Þór er komið að bryggju á Flateyri en áhöfnin hefur sinnt margvíslegum verkefnum undanfarinn sólarhring. Í gær voru björgunarsveitarmenn, áfallateymi og aðrir viðbragðsaðilar fluttir frá varðskipinu í land með léttbátum. 

Í morgun aðstoðaði áhöfnin starfsmenn Vegagerðarinnar að lýsa upp hlíðina með ljóskösturum til að kanna snjóalög. Þá hefur áhöfnin flutt mannskap, búnað og vistir á milli staða í dag auk þess sem hún hefur aðstoðað við að ná olíutanki upp sem lá utan í varnargarðinum. Hann var hífður upp á bryggju. 

Til að varðskipið kæmist að bryggju þurfti að senda léttbát með dýptarmæli sem skannaði höfnina til að athuga hvort einhver fyrirstaða væri í höfninni. Varðskipið verður áfram til taks við Flateyri. Von er á sérfræðingi frá Umhverfisstofnun ásamt hafnarstjóra Ísafjarðarbæjar um borð í skipið vegna undirbúnings við hreinsun hafnarinnar á morgun.

Image00003

Þór við Flateyri.Image00008Léttbátur varðskipsins Þórs.Image00014Frá brú varðskipsins. Image00001_1579189996271Margvíslegur búnaður hefur verið fluttur með varðskipinu.Image00007Áhöfnin að störfum.Image00012Varðskipið lýsir upp með kösturum.