Tilkynningar til sjófarenda, útgáfa 9 – 2026

4. ágúst, 2026

Fimmtudaginn 30.júlí voru Tilkynningar til sjófarenda, ásamt lista yfir leiðréttingar í sjókort, sendar áskrifendum og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslands.

Í þessari útgáfu er m.a. að finna tilkynningar um.

Innsiglingarviti Sandgerði er ljóslaus, siglingaviðvörun hefur verið send út daglega af stjórnstöð frá apríl en því verður hætt nú þegar þetta er birt í Tilkynningum til sjófarenda.

Sama gildir varðandi siglingaviðvörun um skert ljósdrægi Mjóeyrarvita í Fáskrúðsfirði, sú viðvörun hefur einnig verið í daglegum útsendingum frá apríl.

Tilkynnt verður þegar þetta tvennt verður komið í lag.

Tilkynnt er um breyttan stað á öldudufli á Grímseyjarsundi, sem kallar á breytingar í viðeigandi sjókort.  Staðsetning ölduduflsins hefur verið uppfærð í vitaskrá, sem má finna hér.

Nokkuð er um tilkynningar er tengjast Eyjafirði. Má þar nefna breytingar/innfærslu á dýpislínum í korti 57, varað við hvítu ljósopi innan rauða ljósgeirans frá Hríseyjarvita. Útsetning á tveim rannsóknarduflum við Hauganes og leiðrétt númer hafnarkorts Hauganes, í korti 57.

Að lokum eru nýjar upplýsingar um fyrirhugað geimskot frá Hjaltlandseyjum en tímasetning þess hefur verið frestað frá því sem tilkynnt var í Tts 42/2026 (útgáfa 7 – 2026).

Að lokum minnum við á mikilvægi þess að tilkynna til stjórnstöðvar Landhelgisgæslu Íslands ef vitneskja er um eitthvað sem getur ógnað siglingaöryggi, sjá símanúmer hér að neðan.

Fleiri Fréttir