

Engan sakaði þegar fiskibátur varð aflvana skammt utan hafnarinnar á Stykkishólmi í dag og rak í átt að landi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar voru kallaðar út en stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið skömmu eftir hádegi.
Sex voru um borð í bátnum og í fyrstu var talið að akkeri, sem áhöfnin lét falla, næði ekki að stöðva rek hans. Bátar í grenndinni voru jafnframt beðnir um að halda á vettvang til aðstoðar. Björgunarskip frá Rifi og Stykkishólmi voru ræst út og þyrla Landhelgisgæslunnar flaug einnig til Stykkishólms þar sem hún var til taks.
Aðstæður á vettvangi voru góðar og akkeri fiskibátsins hélt honum þar til björgunarskipið Björg tók hann í tog til hafnar í Stykkishólmi.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt þremur útköllum það sem af er degi. Meðan þyrlan var til taks í Stykkishólmi var hún kölluð út vegna fjórhjólaslyss norðan Hólmavíkur. Þyrlan tók á loft frá Stykkishólmi á þriðja tímanum og var komin skömmu síðar á vettvang. Tveir voru fluttir með þyrlunni á Landspítalann í Fossvogi sem lenti þar laust fyrir klukkan fjögur.
Fyrr í dag annaðist þyrlusveitin einnig sjúkraflug vegna slyss sem varð um borð í rútu á Landmannaleið. Einn slasaður var fluttur með þyrlunni til Reykjavíkur.
