
Kennslumyndbönd um móttöku þyrlu á landi og slökkvistörf komin í loftið
14. ágúst 2026
Sumarið 2025 fór fram umfangsmikið samstarfsverkefni Brunamálaskólans, Landhelgisgæslu Íslands, Brunavarna Árnessýslu, S...

Rússneska herskipið Yuri Ivanov, sem sigldi innan íslenskrar efnahagslögsögu en utan íslenskrar landhelgi fyrr í sumar, er aftur komið á svipaðar slóðir og hefur verið norður og vestur af landinu undanfarna daga, utan 12 sjómílna landhelgi landsins en innan efnahagslögsögunnar.
Líkt og greint var frá í júní er skipið með takmarkaðan vopnabúnað og sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun, en engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu.
Landhelgisgæsla Íslands, í nánu samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og herstjórnir Atlantshafsbandalagsins, fylgist grannt með ferðum skipsins en náið samráð er einnig haft við stjórnstöð bandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
